08maí
Er einhver sem enn skoðar þessa síðu??
Allavega þá get ég ekki sett inn fleiri myndir þó ég vildi því að myndakvótinn minn er uppurinn og ég get ekki keypt meiri kvóta!
Þeir sem eru með þessa síðu svara engum póstum sem ég sendi þeim þannig að hálfgerð pattstaða er komin upp. Ætli maður endi ekki á því að færa þessa síðu eitthvert þar sem vel er gert að manni af stjórnendum. Er alveg kominn með nóg af þessum í amk.
En í bili getiði skoðað allar myndir sem ég tek á
www.flickr.com/stinninn en þar er eiginlega myndasíðan mín.
Koma svo, verið duglegir við að kommenta og svona, ekkert gaman af þessu annars.
Kverðja Víðir
28apríl
Fór eina myndaferð í gærkvöldi og náði nokkrum myndum, m.a sá ég tvær gæsir slást um varpsvæði og er sú myndasería undir "gæsaslagur" í myndunum.
Einnig er búið að senda mér nokkrar myndir og mæli ég sérstaklega með myndinni af Auðnutittlingnum á hreiðrinu, alveg hreint mögnuð mynd. Einnig eru smyrils og gæsaungarnir mjög flottir.
Kv. Víðir
27apríl
Ef að einhver lumar á myndum af fuglum, ungum, hreiðrum eða fuglum á hreiðrum sem ekki eru á síðunni þá væri gaman að fá þær til að setja inn. Þið getið sent mér þær á voj@visir.is ef þið hafið áhuga.
Er núna búinn að setja inn allar myndir sem ég átti í mínum fórum en ég mun vera með myndavélina á lofti í allt sumar og vona að það bætist vel í hópinn þegar líða fer á sumarið.
Smá byrjunarörðugleikar voru með myndirnar sem komar voru inn, en þær mega greinilega ekki vera í meiri upplausn en 1000 pix því annars verða þær óskýrar, veit ekki skýringuna á því.
Ef að einhver skoðar þessa síðu má sá hinn sami koma með komment um ágæti síðunnar, eða ef að sá gállinn er á viðkomandi má hann lasta hana líka - réttmætum athugasemdum er ávallt vel tekið.
Kveðja Víðir
25apríl
Sælir.
Þessari síðu er ætlað það hlutverk að vera miðlari milli eggjasafnara vítt og breitt um landið.
Hugmyndin er að koma upp óskalista milli félaga sem og "bíttiskrá".
Einnig er hugmyndin að setja inn myndir af öllum fuglum íslands og hreiðrum þeirra.
Meira er það ekki í bili en ég mun vinna betur í þessari síðu í maí.
Endilega að koma með komment ef þið hafið eitthvað skemmtilegt að segja eða koma með góðar hugmyndir fyrir síðuna.
Kveðja Víðir.
p.s búinn að setja inn nokkrar myndir frá mér